Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. maí 2021 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola segir Aguero vera á leið til Barcelona
Mynd: Getty Images
Sergio Agüero skoraði tvö í stórsigri Manchester City gegn Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Argentínski sóknarmaðurinn hefur þá líklega spilað sinn síðasta úrvalsdeildarleik en hann verður samningslaus í sumar og er líklegast á leið til Barcelona. Svo segir þjálfari hans Pep Guardiola.

„Ég er kannski að uppljóstra leyndarmáli, en hann er kannski nálægt því að semja við félagið sem á hjarta mitt - Barcelona," sagði Guardiola.

„Þar mun hann spila með besta leikmanni allra tíma, Messi. Ég er viss um að hann muni njóta sín þar og að liðið verði sterkara með hann á vellinum."

Agüero, sem verður 33 ára í byrjun júní, hefur skorað 260 mörk í 389 leikjum fyrir Man City. Síðasti keppnisleikur hans fyrir félagið verður úrslitaleikur Meistaradeildarinnar næsta laugardag.
Athugasemdir
banner
banner