Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 24. maí 2021 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Handtekinn fyrir að beina apahljóðum að Rio Ferdinand
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand mætti á Molineux völlinn til að tjá sig um viðureign Wolves gegn Manchester United á BT Sport.

Rauðu djöflarnir unnu á útivelli en einn 31 árs stuðningsmaður Úlfanna var handtekinn eftir leikinn.

Stuðningsmaðurinn var með mikil ólæti á áhorfendapöllunum og beindi meðal annars háværum apahljóðum að Ferdinand.

„Ég væri mjög til í að hitta þennan gaur og fræða hann aðeins. Það þýðir ekkert að refsa fólki án fræðslu," sagði Ferdinand að leikslokum.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner