Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. maí 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Helgi Mikael dæmir Stjarnan - KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjötta umferð Pepsi Max-deildar karla verður leikin í kvöld og annað kvöld. Stjarnan - KA er sjónvarpsleikurinn í kvöld en þar verður Helgi Mikael Jónasson dómari.

Þórður Arnar Árnason og Smári Stefánsson eru aðstoðardómarar leiksins og fjórði dómari er Ívar Orri Kristjánsson. Ívar verður svo sjálfur með flautuna í leik Víkings og Fylkis.

Hér má sjá hverjir dæma í sjöttu umferð Pepsi Max-deildarinnar.

mánudagur 24. maí
19:15 Stjarnan-KA - Helgi Mikael Jónasson
19:15 Keflavík-Valur - Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
19:15 ÍA-Breiðablik - Einar Ingi Jóhannsson

þriðjudagur 25. maí
19:15 KR-HK - Erlendur Eiríksson
19:15 Víkingur R.-Fylkir - Ívar Orri Kristjánsson
19:15 Leiknir R.-FH - Pétur Guðmundsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner