Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. maí 2021 18:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maguire í hópnum fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar
Maguire gæti spilað á miðvikudag.
Maguire gæti spilað á miðvikudag.
Mynd: EPA
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, er í 26 manna leikmannahópi liðsins fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudag.

Man Utd mætir Villarreal í úrslitaleiknum á miðvikudagskvöld. Leikið er í Gdansk í Póllandi.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, sagði á föstudag að hann hugsaði að Maguire myndi ekki spila í úrslitaleiknum, en hann er í leikmannahópnum. Það hvort hann verði í hóp í leiknum sjálfum, það kemur í ljós þegar nær dregur.

Maguire meiddist á ökkla í sigri United gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni fyrr í þessum mánuði. Hann er fyrirliði liðsins og þeirra mikilvægasti maður í varnarleiknum.

Anthony Martial er ekki í hópnum sem mætir Villarreal.

Man Utd á möguleika á að vinna sinn fyrsta titil undir stjórn Solskjær á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner