Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 24. maí 2022 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard ætlar að fá Bissouma
Yves Bissouma
Yves Bissouma
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa ætlar að bæta við sig öðrum sterkum leikmanni á miðsvæðið eftir að hafa gengið frá samningum við franska miðjumanninn Boubacar Kamara.

Villa staðfesti komu Kamara í gær en hann kemur á frjálsri sölu frá Marseille.

Kamara var fastamaður í liði Marseille sem lenti í 2. sæti frönsku deildarinnar og þykir gríðarlega spennandi leikmaður.

Steven Gerrard, stjóri Villa, er ekki hættur og ætlar að styrkja miðsvæðið með öðrum leikmanni en Villa er einnig í viðræðum Yves Bissouma, miðjumann Brighton.

Bissouma vill yfirgefa Brighton og gæti hann verið falur fyrir 30 milljónir punda en Arsenal og Tottenham hafa einnig sýnt honum áhuga.

Villa hafnaði í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu sem var að líða.
Athugasemdir
banner
banner
banner