Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. júní 2018 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Corluka: Modric og Rakitic bestu miðjumenn mótsins
Mynd: Getty Images
Krótatíski varnarmaðurinn Vedran Corluka telur að liðsfélagar sínir, Luka Modric og Ivan Rakitic, séu bestu miðjumenn Heimsmeistaramótins í Rússlandi.

Modric spilar með Real Madrid og Rakitic með Barcelona, en hjá Króatíu eru þeir liðsfélagar og mynda ógnarsterkt teymi á miðjunni.

Þeir voru báðir á skotskónum þegar Króatía sigraði Argentínu 3-0 í riðlakeppni HM síðastliðinn fimmtudag.

„Þeir eru að spila hjá bestu félagsliðum heims og eru núna að skila sinni bestu frammistöðu fyrir Króatíu á stórmóti," sagði Corluka. „Ég er ekki alveg hlutlaus en þeir eru bestu miðjumenn mótsins. Vonandi mun þeir halda áfram og leiða okkur langt á þessu Heimsmeistaramóti."

Corluka gæti komið inn í byrjunarlið Króatíu gegn Íslandi á þriðjudag. Modric og Rakitic munu mögulega báðir fá hvíld þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner