Starfsmenn hótelsins í Kabardinka þar sem íslenskt fjölmiðlafólk hefur dvalið fengu gjöf í dag.
Þeir fengu íslensku landsliðstreyjuna frá íslenskum fjölmiðlum.
Þeir fengu íslensku landsliðstreyjuna frá íslenskum fjölmiðlum.
„Ég ætla að fá Eið Smára til að árita treyjuna og svo fer hún beint upp á vegg," sagði Paul hótelstjóri við afhendinguna.
Arnar Björnsson á Stöð 2 sá um að halda ræðu fyrir hönd fjölmiðla.
„Þið hafið verið algjörir snillingar og viðmótið magnað," sagði Arnar meðal annars í ræðu sinni.
Veitingastaður hótelsins hefur verið notaður mikið í ferðinni en þar eru grillaðar kornhænur, ostastangir og sesar salatið það vinsælasta.
Athugasemdir