Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. júní 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Bardsley framlengir við Burnley - Jói Berg enn á meiðslalistanum
Phil Bardsley lætur finna fyrir sér.
Phil Bardsley lætur finna fyrir sér.
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson er enn á meiðslalista Burnley. Íslenski landsliðsmaðurinn er meiddur á kálfa og verður ekki með liðinu gegn Watford á morgun.

Þetta kom fram á fréttamannafundi Sean Dyche, stjóra Burnley í dag en Chris Wood, Ashley Barnes og Robbie Brady eru einnig á meiðslalistanum.

Á fundinum fór Dyche meðal annars yfir samningamál leikmanna. Varnarmaðurinn Phil Bardsley hefur skrifað undir nýjan samning og er nú bundinn út næsta tímabil.

Þessi 34 ára leikmaður var að renna út á samningi.

Jeff Hendrick og Aaron Lennon munu ekki skrifa undir nýja samninga og yfirgefa því Burnley núna um mánaðamótin.
Athugasemdir
banner
banner
banner