Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. júní 2020 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Liverpool gegn Palace: Þrír fá 9
Mohamed Salah var besti maður vallarins að mati Sky Sports
Mohamed Salah var besti maður vallarins að mati Sky Sports
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah var besti maður leiksins er Liverpool vann Crystal Palace 4-0 í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hann skoraði og lagði upp í leiknum.

Trent Alexander-Arnold opnaði markareikninginn eftir hlé með fallegri aukaspyrnu áður en Salah bætti við öðru undir lok fyrri hálfleiks.

Salah var afar líflegur í leiknum en hann lagði upp fjórða markið fyrir Sadio Mane. Hann, Mane og Fabinho fá allir 9. Sky Sports tók saman einkunnir.

Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (8), Gomez (7), Van Dijk (7), Robertson (7), Fabinho (9), Henderson (7), Wijnaldum (7), Salah (9), Firmino (7), Mane (9).
Varamenn: Oxlade-Chamberlain (6), Williams (6), Minamino (6).

Crystal Palace: Hennessey (5), Ward (5), Cahill (5), Sakho (5), Van Aanholt (6), Kouyate (6), McCarthy (6), McArthur (6), Zaha (N/A), Townsend (5), Ayew (5).
Varamenn: Meyer (6), Milivojevic (6), Riedewald (5).
Athugasemdir
banner
banner