Óvíst er með þátttöku fjögurra leikmanna hjá KR fyrir leikinn gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni á sunnudag.
Gunnar Þór Gunnarsson sleit krossband gegn Vængjum Júpíters í Mjólkurbikarnum í gær og ljóst er að hann spilar ekki meira á tímabilinu.
Miðverðirnir Finnur Tómas Pálmason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson meiddust í fyrsta leik gegn Val og voru ekki með gegn HK um síðustu helgi né gegn Vængjum Júpíters í gær.
Þá eru Tobias Thomsen og Finnur Orri Margeirsson einnig að glíma við meiðsli en þeir voru ekki í hóp í gær. Finnur var einnig fjarverandi gegn HK.

„Þeir eru allir meiddir. Það er 100% að Gunnar verður ekki með en við verðum að sjá með hina fjóra þegar líður á vikuna," sagði Rúnar við Fótbolta.net eftir leikinn í gær.
„Við verðum vonandi ferskir og getum stillt upp góðu liði á sunnudaginn."
Sjá einnig:
Rúnar Kristins búinn að fá nóg: Annar leikmaður sem eyðileggur á sér hnéð
Athugasemdir