„Svekktur með að vera dottinn úr leik en ánægður með það sem við leggjum í leikinn," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Reynis, eftir svekkjandi 2-1 tap lærisveina sinna gegn Þór í Mjólkurbikarnum.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Reynir S.
Reynir komst yfir með marki frá Elton Fufura í fyrri hálfleik og Þórsararnir jöfnuðu ekki fyrr en vel var liðið á seinni hálfleikinn. Var Haraldur farinn að sjá fyrir sér 16-liða úrslitin?
„Við komumst yfir það snemma í leiknum svo það var kannski ekki tímabært. Við hefðum getað komist í 0-2 í leiknum, áttum skalla í slá. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur en mér fannst við mæta hérna og gefum Þórsurunum góðan leik. Þetta var nálægt því að fara í vítaspyrnukeppni sem hefði getað dottið hvoru megin."
Þórsarar fá víti á 116. mínútu þegar Helgi Mikael, dómari leiksins, dæmir leikmann Reynis brotlegan. Sá Haraldur hvað gerðist í teignum?
„Nei ég sé það ekki. Sá sem fær dæmt á sig hendi segir að boltinn hafi ekki farið í hendina á honum og það sést allavega ekkert á upptökunni. Helgi hlýtur að hafa séð hendi, hann dæmir ekki hendi nema það sé hendi."
Haraldur var að lokum spurður út í sumarið í 3. deildinni. Svar við því má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir