Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 24. júní 2020 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Alexander-Arnold skoraði beint úr aukaspyrnu
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold skoraði stórglæsilegt mark í leik gegn Crystal Palace sem nú er í gangi.

Staðan er 2-0 fyrir Liverpool. Alexander-Arnold gerði fyrra markið og Mohamed Salah það seinna.

Alexander-Arnold skoraði mark sitt beint úr aukaspyrnu, en það má sjá hérna. Glæsilegt mark hjá þessum ótrúlega hæfileikaríka leikmanni.

Um er að ræða þriðja deildarmarkið sem hinn 21 árs gamli Alexander-Arnold skorar á tímabilinu. Hann hefur þá verið mjög duglegur að leggja upp á liðsfélagana.

Liverpool tekur risastórt skref í átt að því að staðfesta Englandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner