Anthony Martial, sóknarmaður Manchester United, fór á kostum þegar United vann 3-0 sigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á þessum ágæta miðvikudegi.
Martial gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk United, tvö í fyrri hálfleik og eitt í þeim seinni.
Þetta er mjög merkilegt fyrir þær sakir að Martial er fyrsti leikmaðurinn til að skora þrennu fyrir Manchester United frá því að Sir Alex Ferguson hætti með liðið árið 2013.
Það er að segja fyrsti leikmaðurinn til að skora þrennu fyrir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn var sýndur á Síminn Sport en hér að neðan má sjá mörkin sem Martial skoraði.
Athugasemdir