Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bakvörður Arsenal til Marseille?
Tavares gæti farið frá Arsenal í sumar.
Tavares gæti farið frá Arsenal í sumar.
Mynd: EPA
Nuno Tavares, vinstri bakvörður Arsenal, gæti farið á láni til Marseille í Frakklandi í sumar.

Þetta segir David Ornstein, sem er mjög áreiðanlegur blaðamaður á Bretlandseyjum.

Tavarez var keyptur til Arsenal frá Benfica síðasta sumar en hann virðist ekki alveg vera tilbúinn í að spila í ensku úrvalsdeildinni.

En til þess að hann geti farið, þá þarf Arsenal að fá inn mann sem getur leyst vinstri bakvörðinn.

Lisandro Martinez hjá Ajax er miðvörður sem getur leyst vinstri bakvörð og er hann efstur á óskalistanum hjá Arsenal þessa stundina. Ef hann kemur inn, þá gæti Tavares farið.
Athugasemdir
banner
banner
banner