Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 24. júní 2022 14:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið U23: Hlín fyrirliði
Icelandair
Mynd: Piteå
Klukkan 16:00 mætir U23 ára landslið Íslands A-landsliði Eistlands í vináttuleik. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins og er hann búinn að velja byrjunarliðið í leiknum.

Leikurinn fer fram í hinni skemmtilegu borg Pärnu við Eystrasaltið og verður sýndur í beinni vefútsendingu.

Níu leikmenn í liðinu spila í Bestu deildinni, þar af þrjár með Selfossi. Sjö leikmenn í byrjunarliðinu hafa spilað með Val á síðustu árum. Tvær í byrjunarliðinu spila erlendis en það eru þær Diljá Ýr Zomers og Hlín Eiríksdóttir. Diljá spilar með Häcken og Hlín er hjá Piteå. Hlín er fyrirliði liðsins.

Byrjunarliðið:
Auður Sveinbjörnsd. Scheving (Afturelding á láni frá Val)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfoss)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfoss)
Arna Eiríksdóttir (Þór/KA á láni frá Val)
Karen María Sigurgeirsdóttir (Breiðablik)
Katla María Þórðardóttir (Selfoss)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
Hlín Eiríksdóttir (Piteå)
Diljá Ýr Zomers (Häcken)
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Afturelding á láni frá Val)


Athugasemdir
banner
banner
banner