Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 24. júní 2022 18:04
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Víkings í úrslitaleiknum: Engar breytingar
Júlíus Magnússon, fyrirliði Víkings.
Júlíus Magnússon, fyrirliði Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net er með þráðbeina textalýsingu frá heimavelli hamingjunnar þar sem Víkingur mætir meisturunum frá Andorra, Inter Escaldes, í úrslitaleik um sæti í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Ef Víkingur vinnur umspilið fer liðið í tveggja leikja einvígi við Svíþjóðarmeistara Malmö í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Þjálfari Malmö er Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings.

Arnar Gunnlaugsson stillir upp sama byrjunarliði og vann Levadia Tallinn 6-1 í vikunni.

Byrjunarlið Víkings:
16. Þórður Ingason (m)
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed
12. Halldór Smári Sigurðsson
20. Júlíus Magnússon (f)
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
80. Kristall Máni Ingason
Athugasemdir
banner
banner
banner