Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júní 2022 17:00
Elvar Geir Magnússon
Dewsbury-Hall framlengir við Leicester
Kiernan Dewsbury-Hall með knöttinn.
Kiernan Dewsbury-Hall með knöttinn.
Mynd: EPA
Kiernan Dewsbury-Hall hefur skrifað undir nýjan samning við Leicester sem gildir til 2027.

Dewsbury-Hall er 23 ára og fékk verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína á miðsvæði Leicester á síðasta tímabili.

Hann lék alls 44 leiki á tímabilinu, skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark og var valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu af liðsfélögum sínum.

Í maí hrósaði Brendan Rodgers, stjóri Leicester, Dewsbury-Hall í hástert.

„Það er sannur heiður að vinna með honum. Ég veit að hann hefur metnað til að verða enn betri. Ef þú staðnar þá kemur einhver og vill hirða sætið af þér en hann er ákveðinn í að láta það ekki gerast. Hann mun bara verða betri," sagði Rodgers.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner