Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júní 2022 06:00
Elvar Geir Magnússon
Englandsmeistarabikarinn til sýnis á Íslandi í kvöld
Mynd: EPA
Stuðningsmannaklúbbur Manchester City á Íslandi stendur fyrir viðburði í nýja Framheimilinu í Úlfarsárdal í kvöld milli 19 og 21.

Englandsmeistarabikarinn sem City vann í vor verður til sýnis.

Húsið opnar 18:00 og geta áhugasamir fengið sér grillaðan hamborgara og drykki gegn vægu gjaldi.

Viðburðurinn er opinn öllum almenningi og eiga áhugasamir sem vilja eiga mynd af sér með bikarnum möguleika á því.

„Endilega komið við í nýju félagsheimili FRAM við Úlfarsbraut 126 og sjáið bikarinn með eigin augum!" segir í tilkynningu.
Athugasemdir
banner
banner
banner