Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 24. júní 2022 11:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forest nær samkomulagi við Man Utd - Awoniy að skrifa undir
Mynd: EPA
Notthingham Forest hefur náð samkomulagi við Manchester United um að fá Dean Henderson á láni út komandi tímabil.

Í lánssamningnum er ekki ákvæði um upphæð sem Forest getur greitt United til að fá markvörðinn alfarið í sínar raðir. Forest fór upp í úrvalsdeildina í vor í gegnum umspilið í Championship deildinni.

Samningur Henderson við United rennur út 2025 en hann skrifaði undir fimm ára samning árið 2020.

Forest er að selja Brice Samba til franska félagsins Lens. Samba varði mark Forest í 40 leikjum á síðasta tímabili. Hann á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Forest.

Þá greinir Sky Sports frá því að Forest sé að ganga frá kaupum á Taiwo Awoniyi frá Union Berlin. Forest greiðir um 17,5 milljónir punda fyrir framherjann sem skoraði tuttugu mörk fyrir Union á liðinni leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner