Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júní 2022 18:33
Brynjar Ingi Erluson
Lille samþykkir tilboð Newcastle í Botman
Sven Botman er á leið til Newcastle
Sven Botman er á leið til Newcastle
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lille samþykkti í dag tilboð Newcastle United í hollenska varnarmanninn Sven Botman. Þetta kemur fram á Sky Sports.

Newcastle hefur leitast eftir því að styrkja varnarlínuna fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en félagið hefur fylgst með Botman síðasta hálfa árið eða svo.

Ítalska félagið Milan var í bílstjórasætinu um Botman en leikmaðurinn hefur nú ákveðið að ganga í raðir Newcastle.

Sky segir Lille hafa samþykkt 35 milljón punda tilboð Newcastle í Botman sem er 22 ára gamall.

Hann mun halda til Englands í næstu viku og gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning við félagið.

Botman var einn besti maður Lille á síðasta ári er liðið vann frönsku deildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner