Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 24. júní 2022 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Newcastle hættir við Ekitike
Hugo Ekitike.
Hugo Ekitike.
Mynd: Getty Images
Að sögn fjölmiðilsins 90min er Newcastle hætt við að kaupa franska framherjann Hugo Ekitike.

Fyrr í þessum mánuði benti allt til þess að Ekitike yrði leikmaður Newcastle; Reims samþykkti 25 milljón punda tilboð og viðræður gengu vel.

En núna er sagt frá því að viðræður hafi siglt í strand.

Umboðsmaður leikmannsins var að biðja um upphæðir aukalega sem Newcastle þótti of mikið að borga fyrir þennan tiltekna leikmann.

Newcastle hefur enn áhuga á Ekitike en ætlar að skoða aðra möguleika núna.

​​Ekitike, sem er 19 ára, þykir gríðarlega efnilegur. Hann skoraði tíu mörk og lagði fjögur upp í 24 leikjum á nýliðinni leiktíð í efstu deild franska boltans. Paris Saint-Germain er einnig sagt hafa áhuga á honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner