Manchester City er ríkjandi meistari í ensku úrvalsdeildinni eftir dramatíska lokaumerð á síðustu leiktíð.
Liverpool þurfti að treysta á að Aston Villa myndi vinna City á meðan Liverpool myndi vinna Wolves.
Það leit vel út þar sem Villa var 2-0 yfir þegar 75 mínútur voru á klukkunni. Ilkay Gundogan skoraði þá tvö mörk og Rodri eitt aðeins á fimm mínútna kafla og tryggði City titilinn.
Riyad Mahrez leikmaður City er staðráðinn í að verja titilinn.
„Við viljum virkilega vinna aftur. Við hugsum aldrei; Jæja, þetta verður auðvelt í ár eða að við getum slakað á," sagði Mahrez.
Hann rifjaði upp lokaumferðina á síðustu leiktíð.
„Ég hugsaði bara; Hver andskotinn, hvað er í gangi? Við spiluðum heima og vorum að tapa 2-0 gegn Villa. Stundum líður manni ekki vel í leikjum, það var þannig fyrir mig þarna en aðrir komu inn og hjálpuðu okkur að vinna, það er það sem liðið snýst um."