Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. ágúst 2019 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Daniel James: Hélt við myndum skora annað
Mynd: Getty Images
Daniel James, ungur kantmaður Manchester United, lék allan leikinn í 1-2 tapi gegn Crystal Palace fyrr í dag.

James skoraði jöfnunarmark á 89. mínútu en Patrick van Aanholt gerði sigurmark Palace í uppbótartíma.

„Við vorum ekki nógu góðir í fyrri hálfleik en leikur okkar skánaði mikið eftir leikhlé. Þeir voru þéttir varnarlega og gerðu okkur mjög erfitt fyrir," sagði James.

„Þegar við gerðum jöfnunarmarkið hélt ég að við myndum skora annað og vinna leikinn. Ég er mjög ánægður með að hafa skorað en finnst eins og við hefðum átt að vinna. Það er mjög svekkjandi að tapa leik sem þú hefur góða stjórn á."

Bæði lið eru með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner