Slæm byrjun Vincent Kompany hjá Anderlecht hélt áfram í dag er liðið tapaði 1-0 á útivelli gegn Genk.
Kompany hætti þjálfun liðsins á dögunum til að einbeita sér að því að spila eftir slæma byrjun á tímabilinu í Belgíu. Hann byrjaði inná í gærkvöldi en fór meiddur af velli á 75. mínútu.
Anderlecht er með tvö stig eftir fimm umferðir og komu bæði stigin úr markalausum jafnteflum. Kompany var búinn að spila hverja einustu mínútu þar til hann meiddist.
Næstu leikur liðsins er gegn Standard Liege næsta laugardag. Standard er með níu stig eftir fjórar umferðir og mætir Kortrijk á morgun.
Athugasemdir