Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. ágúst 2021 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætlar að hoppa nakinn í sundlaug ef Mbappe fer í Liverpool
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: Getty Images
Jose Enrique, fyrrum vinstri bakvörður Liverpool, segist ætla að hoppa nakinn ofan í sundlaug ef Liverpool krækir í Kylian Mbappe frá Paris Saint-Germain.

Mbappe verður samningslaus næsta sumar, en samningaviðræður hans við PSG ganga hægt.

Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid, en Liverpool hefur einnig brugðið fyrir í slúðurdálkunum.

Enrique er mjög spenntur fyrir þeirri tilhugsun að fá Mbappe í Liverpool. Svo spenntur að hann lofar því að hoppa nakinn ofan í sundlaug ef það gerist.

Hann segist ætla að gera það í beinni útsendingu á Instagram.

Mbappe er 22 ára gamall og hefur verið með betri leikmönnum heims undanfarin ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner