Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 24. ágúst 2021 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea komið langt í viðræðum við Atletico
Mynd: Getty Images
Chelsea er enn að reyna að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök og er í leit að miðjumanni og varnarmanni.

Enska stórveldið vill krækja í Saúl Niguez frá Atletico Madrid og Jules Koundé frá Sevilla.

Fabrizio Romano greinir frá því að Chelsea sé í viðræðum við Atletico til að fá Saúl að láni með kaupmöguleika.

Chelsea vill fá Koundé til að fylla í skarðið sem Kurt Zouma skilur eftir sig þegar hann fer til West Ham.

Manchester United hefur einnig mikinn áhuga á Saúl en á eftir að leggja fram tilboð.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner