Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. ágúst 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Inter í viðræðum við Torino um Belotti
Andrea Belotti gæti verið á leið til Inter
Andrea Belotti gæti verið á leið til Inter
Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Inter ætla að bæta við sig öðrum sóknarmanni áður en glugginn lokar í næstu viku en félagið er í viðræðum við Torino um Andrea Belotti.

Inter seldi Romelu Lukaku til Chelsea fyrir metfé á dögunum eða um 97 milljónir punda.

Félagið fékk Edin Dzeko frá Roma en vill bæta við sig öðrum framherja.

Samkvæmt Gianluca Di Marzio þá er Inter í viðræðum við Torino um Andrea Belotti.

Belotti hefur komið að 132 mörkum í 230 leikjum með Torino en hann varð Evrópumeistari með ítalska landsliðinu í sumar.

Hann vill þó taka næsta skrefið á ferlinum eftir að hafa verið í erfiðri baráttu með Torino síðustu ár.
Athugasemdir
banner
banner