Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. ágúst 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Maignan líflegur í markinu hjá Milan
Mike Maignan átti margar góðar vörslur í leiknum og var mikið í því að hlaupa út úr teignum
Mike Maignan átti margar góðar vörslur í leiknum og var mikið í því að hlaupa út úr teignum
Mynd: EPA
Franski markvörðurinn Mike Maignan stal senunni í 1-0 sigri Milan á Sampdoria í Seríu A í gær.

Maignan kom til Milan frá Frakklandsmeisturum Lille í sumar en hann tók við stöðunni af Gianluigi Donnarumma, sem samdi við Paris Saint-Germain.

Frakkinn var frábær í fyrsta leiknum með Milan. Hann átti góðar sendingar fram völlinn, varði eins og berserkur og var afar líflegur í leiknum.

Hann átti meðal annars sinn þátt í markinu en hann átti langa sendingu fram á Davide Calabria sem gaf fyrir á markaskorarann Brahim Diaz.

Hægt er að sjá klippur af Maignan úr leiknum hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner