Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 24. ágúst 2021 21:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Orri Hjaltalín: Þetta er eins rautt spjald og þau verða
Lengjudeildin
Orri Freyr Hjaltalín
Orri Freyr Hjaltalín
Mynd: Raggi Óla
Mynd: Raggi Óla
„Það er alltaf hræðilega fúlt að tapa. Við erum í brekku, erum ekki að skora mörk og þetta er held ég þriðji eða fjórði leikurinn í röð sem við erum ekki að skora. Á meðan við skorum ekki þá vinnum við ekki leiki. Þetta er mjög vond tilfinning. Við erum að leita leiða til að brydda upp á einhverju nýju en það heppnaðist ekki í dag," sagði Orri Freyr Hjaltalín, þjálfari Þórs, eftir tap gegn Kórdrengjum í dag.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 -  0 Þór

Í svona brekku, hvernig er hægt að létta á stemningunni í restina?

„Stemningin á æfingu er góð og æfingarnar eru fínar en við erum svolítið flatir þegar við erum að byrja leikina, menn eru lengi að koma sér í gírinn og við erum lentir undir þegar við förum að vakna. Það er alltof hættuleg uppskrift. Við þurfum að byrja leikinn gegn Fjölni eins og menn og gjöra svo vel að fara vinna einhverja leiki."

Ásgeir Frank Ásgeirsson, leikmaður Kórdrengja, fékk að líta rauða spjaldið fyrir tæklingu fyrir framan bekkinn hjá Þór. Hver er þín sýn á það atvik?

„Þetta er eins rautt spjald og þau verða, lyfti löppinni alltof hátt og glæfraleg tækling. Hann fer beint í hnéð á mínum manni. Staðan á Ásgeiri er allt í lagi, hann er aðeins bólginn og vel merktur eftir takkana á honum. Hann verður vonandi klár aftur í næsta leik," sagði Orri.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan. Orri kemur inn á meiðsli sóknarmanna og er spurður út í hvað hann vilji fá út úr lokaleikjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner