Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. ágúst 2021 20:15
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi Max-deild kvenna: Hildigunnur Ýr með sigurmarkið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 1 - 0 Fylkir
1-0 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('76 )

Lestu um leikinn

Stjarnan tók á móti Fylki í hörkuslag í eina leik kvöldsins í Pepsi Max-deild kvenna.

Stjörnustúlkur byrjuðu betur en bæði lið fengu góð færi er tók að líða á hálfleikinn. Það var mikið um marktilraunir en knötturinn rataði ekki í netið og staðan því markalaus í leikhlé.

Fjörið hélt áfram í síðari hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Stjarnan fékk betri færi og verðskuldaði forystuna þegar Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði með þrumufleyg á 76. mínútu.

Fylkiskonur reyndu að jafna undir lokin en þær tilraunir báru ekki árangur og niðurstaðan 1-0 sigur Stjörnunnar.

Stjarnan er áfram að berjast við Þrótt og Selfoss um 3. sætið á meðan Fylkir er í harðri fallbaráttu ásamt Tindastóli og Keflavík.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner