Lionel Messi hjá Barcelona tókst að slá enn eitt metið í spænsku úrvalsdeildinni í gær.
Messi var að spila 423. leik sinn í spænsku úrvalsdeildinni en með því sló hann met. Hann er nú leikjahæsti útlendingurinn í sögu deildarinnar.
Daniel Alves, fyrrum samherji hans í Barcelona, átti metið á undan honum.
Messi fagnaði því auðvitað með því að skora í leiknum en Börsungum mistókst þó að ná í öll stigin. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Clement Lenglet fékk að líta rauða spjaldið fyrir olnbogaskot.
Athugasemdir