Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. september 2018 18:15
Ingólfur Páll Ingólfsson
Ronaldo mætir ekki á verðlaunaafhendingu FIFA í kvöld
Ronaldo verður ekki viðstaddur FIFA verðlaunaafhendinguna í kvöld.
Ronaldo verður ekki viðstaddur FIFA verðlaunaafhendinguna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo verður ekki viðstaddur verðlaunaafhendingu FIFA á leikmönnum ársins sem fram fer í London þrátt fyrir að vera talinn líklegastur til þess að vera kjörinn leikmaður ársins.

Portúgalski framherjinn spilaði og skoraði í sigri Juventus á Frosinone síðastliðið sunnudagskvöld og er reiknað með því að hann byrji gegn Bologna á miðvikudaginn.

Það er því stutt á milli leikja og er Ronaldo sagður hafa ákveðið að halda kyrru fyrir á Ítalíu til þess að einbeita sér að félagsliði sínum frekar en að mæta á verðlaunaafhendinguna þar sem hann gæti mögulega unnið verðlaunin um leikmann ársins í sjötta sinn.
Athugasemdir
banner