Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 24. september 2018 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirlýsing frá Hugin - Óska eftir afsökunarbeiðni frá KSÍ
Úr leik Gróttu og Hugins í lokaumferð 2. deildar karla.
Úr leik Gróttu og Hugins í lokaumferð 2. deildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Raggi Óla
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar
Frá Seyðisjfarðarvelli.
Frá Seyðisjfarðarvelli.
Mynd: Huginn
Málið um endurtekinn leik Hugins og Völsungs í 2. deild karla var eitt stærsta mál sumarsins í fótboltanum hér á landi.

Liðin mættust fyrst í ágúst og þá hafði Huginn betur 2-1 en áfrýjunardómstóll KSÍ ógildi viðureign liðanna vegna dómaramistaka sem áttu sér stað í leiknum og vegna skýrslugerðar dómara eftir leikinn.

Endurtekinn leikur Hugins og Völsungs í 2. deild karla átti að fara fram á miðvikudag í síðustu viku, klukkan 16:30, en hann var ekki spilaður.

Í dómsuppkvaðningu kom fram að leikurinn ætti að fara fram á Seyðisfjarðarvelli en hann var færður á Egilsstaði, á Fellavöll. Þangað mætti lið Völsungs en Huginsmenn mættu ekki. Leikmenn Hugins mættu þess í stað á Seyðisfjarðarvöll eins og sagði til um í dómi KSÍ. Völsungi var dæmdur 3-0 sigur.

Sjá einnig:
Huginn ekki sagt sitt síðasta - Var Fellavöllur leikfær

Huginn, sem mun spila í 3. deild á næsta tímabili, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér að neðan.

Yfirlýsing Hugins
Í ljósi þeirrar atburðarásar sem varð í kjölfar leiks Hugins og Völsungs þann 17. ágúst sl. vill stjórn Hugins koma eftirfarandi á framfæri.

17. ágúst – Dómari vísar leikmanni Völsungs ranglega af velli í uppbótatíma (mistök starfsmanns KSÍ).

18. ágúst – Starfsmaður á skrifstofu KSÍ ráðleggur dómara að gera breytingu á leikskýrslu og skilar þar af leiðandi inn rangri skýrslu. Sá starfsmaður hefur enga heimild til slíks og er þetta brot á starfsreglum KSÍ (mistök starfsmanns KSÍ). Umrædd breyting á leikskýrslu varð til þess að leikmaður Völsungs sem fyrir mistök dómara hafði hlotið rautt spjald í leiknum var þess í stað skráður með gult spjald og gat því leikið næsta leik gegn Leikni Fáskrúðsfirði - sem Völsungur nýtti sér.

20. ágúst – Huginn er birt kæra Völsungs vegna leiksins þar sem einungis er krafist þess að síðustu sex mínútur leiksins skuli spilaðar aftur vegna dómaramistaka. Stjórn Hugins hófst þegar handa við að bregðast við þeirri kæru. Athugið - enga varakröfu var þar að finna.

21. ágúst – Völsungur skilar inn uppfærðri kæru (einnig dagsett 20. ágúst) þar sem bætt hefur verið inn varakröfu þar sem óskað er eftir því að leikurinn verði endurspilaður í heild sinni. Þessi breyting á upprunalegri kæru Völsungs var ekki send til Hugins og gat stjórn því ekki varist þessum breyttu forsendum áður en aga- og úrskurðarnefnd fjallaði um málið. Svo virðist sem starfsmaður KSÍ hafi sent öllum aðilum málsins, nema Huginn, uppfærða útgáfu af kæru Völsungs og telst það ekki til eðlilegra vinnubragða (mistök starfsmanns KSÍ).

4. september – Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vísar málinu frá án þess að taka afstöðu til varakröfu Völsungs, þessarar sömu og Huginn fékk ekki að sjá né verjast. Er þetta í fyrsta skipti sem Huginn sér varakröfu Völsungs. Völsungur áfrýjar málinu í kjölfarið til áfrýjunardómstóls KSÍ og þá er Huginn allt í einu ekki lengur aðili að málinu og fær engar upplýsingar um málsframvindu. Það er mjög sérstakt að kærði (Huginn) í kærumáli Völsungs gegn Huginn sem er áfrýjað til æðri dómstóls, hafi ekki aðild að máli á áfrýjunarstigi og geti ekki skilað inn greinargerð þar sem niðurstaða máls getur skipt verulegu máli fyrir kærða.

16. september – áfrýjunardómstóll KSÍ kemst að þeirri niðurstöðu að leikurinn skuli endurtekinn á Seyðisfjarðarvelli vegna þess að dómarinn fór út fyrir valdsvið sitt. Dómsorð dómstólsins voru orðrétt „Leikur Hugins Seyðisfirði og Völsungs Húsavík í 2. deild sem leikinn var 17. ágúst 2018 á Seyðisfjarðarvelli er ógildur og skal endurtaka hann á Seyðisfjarðarvelli.” Af ofangreindu leiðir að áfrýjunardómstóllinn hafði úrskurðað um mál sem ekki hafði hlotið löglega meðferð á grunnstigi. Einnig má benda á að í upprunalegri kæru Völsungs snérist kæran um mistök dómara á leikvelli en fyrir áfrýjunardómstóli breyttu þeir málagrundvelli sínum og lögðu áherslu á mistök við skýrslugerð.

Huginn mótmælti niðurstöðu áfrýjunardómstólsins harðlega í samtölum við framkvæmdastjóra og mótastjóra KSÍ og sendi jafnframt frá sér fréttatilkynningu.

18. september - Huginn fer fram á það í tölvupósti við Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ, stjórn KSÍ og framkvæmdastjórn KSÍ að málið yrði endurupptekið á grundvelli þess að hin uppfærða krafa Völsungs hafði ekki verið kynnt Huginn né hafi aga- og úrskurðarnefnd fjallað um hana á kærustigi málsins. Því hefði hún aldrei átt að vera tekin fyrir við áfrýjun.

Huginn hefur enn ekki fengið skriflegt svar við þessu erindi.

Í kjölfarið á úrskurði áfrýjunardómstólsins fór mótastjóri KSÍ í það að finna tíma og dagsetningu til að spila leikinn á Seyðisfjarðarvelli. Mótastjóri ákvað í samráði við liðin að leikurinn skyldi fara fram á Seyðisfirði, miðvikudaginn 19. september kl 16:30.

Þegar leið að leikdegi var útlit fyrir að veðuraðstæður yrðu ekki hagstæðar og hafði stjórn Hugins samband bæði við mótastjóra og framkvæmdastjóra KSÍ til að koma því á framfæri. Jafnframt sagði stjórn Hugins að hún teldi KSÍ vera óheimilt að færa leikinn á annan völl og var vísað þar í dómsorð áfrýjunardómstólsins. Fulltrúi KSÍ fullyrti samt sem áður í viðtölum við fjölmiðla að engin mótmæli hafi borist frá Huginn vegna breytinga á leikvelli. Huginn hafnar þessu alfarið þar þegar var búið að koma því á framfæri bæði við mótastjóra og framkvæmdastjóra KSÍ.

Að morgni leikdags sendir stjórn Hugins KSÍ tölvupóst með myndum af Seyðisfjarðarvelli þar sem hún telur völlinn vera óleikhæfan. KSÍ ákveður í síðan kjölfarið að færa leikinn yfir á Fellavöll sem var jafn óleikfær að okkar mati. Sjá má myndskeið af Fellavelli á leikdegi sem Huginn hefur birt á Facebook síðu sinni.

Dómsorðið er skýrt - spila skal leikinn á Seyðisfjarðarvelli. Almennt ákvæði 38.6 gr. reglugerðar KSÍ um knattspyrnumót veitir mótanefnd heimild til að breyta leikstað og stund hefðbundinna leikja í Íslandsmóti. Þetta ákvæði veitir henni hins vegar ekki heimild til að víkja frá leikstað vegna endurtekins leiks sem æðsti dómstóll KSÍ hefur dæmt að endurtaka skuli á sama stað og hinn upprunalegi leikur.

Því teljum við að mótastjóri KSÍ hafi farið út fyrir valdheimildir sínar með því að víkja frá skýrt orðuðu dómsorði. Starfsfólks KSÍ hafði áður gert stjórn Hugins það ljóst að það hefði engar heimildir til að breyta dómi áfrýjunardómstólsins og því ákvað Huginn að virða dómsorð og mæta til leiks á Seyðisfjarðarvelli þegar ljóst var að KSÍ myndi ekki breyta leikdegi.

KSÍ er ekkert annað en liðin í landinu. Við getum haft áhrif á stjórnir og formenn en við getum ekki kosið okkur starfsfólk á skrifstofu KSÍ. Því er það okkur mikilvægt að þegar starfsfólk sambandsins er uppvíst að því að hafa tekið rangar ákvarðanir sem brjóta gegn reglum og reglugerðum KSÍ, sem félögin í landinu hafa samþykkt, að á því sé tekið. Afleiðingar vegna mistaka starfsmanna mega ekki einungis beinast gegn þeim aðildarfélögum sem eru svo óheppin að lenda í slíkri atburðarrás eins og Huginn í þessu einstæða máli.

Okkur finnst einnig miður að KSÍ hafi ekki séð sér fært að koma fram opinberlega og viðurkenna sín mistök í þessu máli. Það er líkt og að öll samskipti þeirra við fjölmiðla hafi fremur snúist um að bjarga eigin andliti, starfsmanna sinna og skrifstofu. Framkvæmdarstjóri KSÍ minntist á það í sjónvarpsfréttum að með orðum og útskýringum forráðamanna Hugins væri „verið að fara í manninn en ekki boltann”. Það hefur verið afar erfitt fyrir Huginn að nálgast „boltann” í þessu máli þar sem varðmenn valdsins hafa staðið þétt saman til þess að hindra leiðina að „boltanum”. Það finnst okkur frekar lítilmannlegt og eingöngu gert til að verja eigin mistök.

Er það upplifun okkar að KSÍ hafi alvarlega vegið að heiðri og orðspori Hugins og er stjórn Hugins því skylt að verja félagið fyrir hönd leikmanna, stuðningsmanna og allra þeirra sem gengið hafa veginn með félaginu allt frá stofnun þess. Við óskum því eftir að KSÍ biðji félagið opinberlegrar afsökunar á sinni framkomu og röð mistaka af hálfu sambandsins í málinu öllu.

Stjórn Hugins hefur ákveðið að aðhafast ekki frekar í málinu en telur mikilvægt fyrir leikmenn, stuðningsfólk og íslenska knattspyrnu í heild að KSÍ dragi lærdóm af því sem á undan er gengið . Byggja þarf traust að nýju á milli aðila og teljum við þar af leiðandi farsælast að KSÍ axli ábyrgð á sínu hlutverki í þessu máli.

Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem hafa staðið við bakið á okkur og veitt okkur aðstoð. Óskum við Aftureldingu og Gróttu til hamingju með frábæran árangur í 2. deild á liðnu keppnistímabili.

Áfram fótbolti! Áfram réttlæti! Stjórn knattspyrnudeildar Hugins
Athugasemdir
banner
banner