fim 24. september 2020 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bandaríkin: Gummi byrjaði þriðja leikinn í röð
Mynd: Getty Images
New York City 0 - 1 Toronto FC
0-1 Alejandro Pozuelo ('90, víti)

Guðmundur Þórarinsson virðist á góðri leið með að vinna sér inn fast byrjunarliðssæti í liði New York City FC í bandarísku MLS deildinni.

Í gærkvöldi byrjaði hann sinn þriðja deildarleik í röð og spilaði fyrstu 70 mínúturnar áður en honum var skipt útaf í stöðunni 0-0 gegn Toronto FC.

New York var betri aðilinn nánast allan leikinn en gestirnir frá Kanada stálu sigrinum með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu.

New York er áfram í harðri baráttu um að ná umspilssæti, með 17 stig eftir 13 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner