Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. september 2021 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn um helgina - Barcelona mætir Levante án Koeman
Það er bras í Barcelona um þessar mundir.
Það er bras í Barcelona um þessar mundir.
Mynd: Getty Images
Sjöunda umferð efstu deildar á Spáni fer fram um helgina. Atletico Madrid heimsækir botnlið Alaves í hádeginu á morgun.

Atletico er í 2. sæti tveimur stigum á eftir Real Madrid en Alaves er á botninum án stiga.

Valencia og Atletic Bilbao mætast kl 14:15, Sevilla fær Espanyol í heimsókn kl 16:30 og í kvöld leiknum kl 19 fær topplið Real Madrid, Villarreal í heimsókn.

Mallorca og Osasuna mætast í hádeginu á sunnudaginn. Barcelona sem er í miklu veseni þessa dagana fær Levante í heimsókn. Real Sociedad sem er í 3. sæti fær Elche í heimsókn. Einn leikur er á mánudagskvöldið er Celta fær Granada í heimsókn.

Leikir helgarinnar:

laugardagur 25. september

12:00 Alaves - Atletico Madrid
14:15 Valencia - Athletic
16:30 Sevilla - Espanyol
19:00 Real Madrid - Villarreal

sunnudagur 26. september

12:00 Mallorca - Osasuna
14:15 Barcelona - Levante
16:30 Real Sociedad - Elche
16:30 Vallecano - Cadiz
19:00 Betis - Getafe

mánudagur 27. september

19:00 Celta - Granada CF
Athugasemdir
banner
banner
banner