Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. nóvember 2019 16:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martinez: Verðum að hvíla okkur... eins og hann segir
Lautaro Martinez.
Lautaro Martinez.
Mynd: Getty Images
Lautaro Martinez, framherji Inter, viðurkennir að nýleg ummæli þjálfara hans, Antonio Conte, hafi fengið hann til að hlæja.

„Ég ráðlegg leikmönnum mínum að stunda kynlíf í stuttan tíma, leggi á sig litla áreynslu og séu helst í stellingu þar sem þeir eru undir maka sínum - þá helst með eiginkonum sínum," sagði Conte við franska íþróttablaðið L'Equipe.

Martinez var spurður af DAZN hvort að hann hefði hlegið að þessum ummælum.

Hann sagði: „Já. Við verðum að halda áfram að leggja mikið á okkur á æfingum. Hins vegar, þegar við erum heima, þá verðum við að hvíla okkur... eins og hann segir."

Martinez skoraði í 3-0 sigri Inter á Torino á laugardag. Inter er í öðru sæti Seríu A með stigi minna en Juventus.

„Við erum að standa okkur mjög vel. Við verðum að halda áfram svona, og bæta okkur frá degi til dags," sagði Martinez, sem er búinn að skora sex mörk í 13 deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner