Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 24. desember 2017 19:30
Ingólfur Stefánsson
Henderson missir af leiknum gegn Swansea
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson fyrirliði Liverpool verður ekki með í leik liðsins gegn Swansea á öðrum degi jóla. Henderson fór meiddur af velli í 3-3 jafntefli gegn Arsenal á föstudag.

Henderson var tekinn útaf snemma í leiknum en James Milner kom inn á í hans stað og tók við fyrirliðabandinu.

Jugen Klopp hefur staðfest að Henderson verði ekki klár fyrir leikinn gegn Swansea og hefur áhyggjur af því að hann verði lengur frá og missi af jóladagskrá liðsins.

Liverpool mætir Leicester á Anfield einungis fjórum dögum eftir leikinn gegn Swansea á annan í jólum. Á nýársdag ferðast liðið svo til Burnley og mætir þar Jóhanni Berg Guðmundssyni og hans félögum.
Athugasemdir
banner
banner