Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Maccabi Tel Aviv sem mætti Hapoel Ironi Kiryat Shmona í gær.
Selfyssingurinn var að sjálfsögðu á skotskónum, en hann skoraði fyrra mark Maccabi Tel Aviv í 2-1 sigri.
Viðar hefur verið að gera virkilega flotta hluti í Ísrael og skoraði meðal annars á dögunum sigurmark Maccabi Tel Aviv þegar þeir urðu bikarmeistarar.
Með sigrinum fór Maccabi Tel Aviv í þriðja sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Hapoel Haifa.
Hér að neðan má sjá mark Viðars en það má sjá þegar 40 sekúndur eru liðnar af myndbandinu.
Athugasemdir