Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 24. desember 2020 08:00
Aksentije Milisic
Emery bætir met hjá Villareal
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Villareal, hefur bætt met hjá félaginu en liðið hefur spilað mjög vel það sem af er þessari leiktíð.

Villareal hefur ekki tapað í síðustu 19 leikjum og er það nýtt félagsmet. Liðið hefur einungis tapað einum leik í deildinni það sem er en liðið situr í fjórða sæti deildarinnar, sex stigum frá toppnum.

Þá er Villareal komið í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og ljóst að þessi fyrrum stjóri Arsenal er að gera góða hluti á Spáni.

Villareal gerði 1-1 jafntelfi gegn Athletic Bilbao í fyrradag.


Athugasemdir
banner
banner