Scott Parker, stjóri Fulham, verður ekki á hliðarlínunni þegar lærisveinar hans mæta Southampton á öðrum degi jóla í ensku úrvalsdeildinni.
Parker er kominn í sóttkví eftir að aðili á heimili hans greindist með kórónuveiruna.
Matt Wells og Stuart Gray, aðstoðarmenn Parker, munu stýra Fulham frá hliðarlínunni í leiknum gegn Southampton.
Vonast er til þess að Parker snúi aftur á hliðarlínuna þann 30. desember gegn Tottenham, en Parker er fyrrum leikmaður Tottenham.
Fulham er í fallsæti sem stendur, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir