Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur staðfest að Erik Garcia sé á förum frá félaginu.
Hinn tvítugi Garcia er væntanlega á leið aftur til Barcelona en hann var í akademíu Börsunga áður en hann fór til Manchester City árið 2017.
Hinn tvítugi Garcia er væntanlega á leið aftur til Barcelona en hann var í akademíu Börsunga áður en hann fór til Manchester City árið 2017.
Garcia verður samningslaus í sumar og gæti farið frítt þá. Þó er ekki útilokað að Barcelona kaupi Garcia áður en félagaskiptaglugginn lokar eftir viku.
„Ég er nokkuð viss um að hann muni fara. Hvort það gerist í þessum glugga veltur á félögunum (Manchester City og Barcelona)" sagði Guardiola.
Garcia hefur glímt við meiðsli og verið frá vegna kórónuveirunnar á þessu tímabili en hann hefur komið við sögu í átta leikjum.
Athugasemdir