Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. mars 2019 06:00
Elvar Geir Magnússon
Frakkar leika í sérstökum afmælistreyjum í kvöld
Icelandair
Hugo Lloris með afmælistreyjuna.
Hugo Lloris með afmælistreyjuna.
Mynd: FFF
Á fréttamannafundi Frakka í gær var opinberuð sérstök treyja sem franska landsliðið mun klæðast í leiknum gegn Íslandi í kvöld.

Treyjan verður notuð í þetta eina skipti en hún er til að halda upp á 100 ára afmæli franska knattspyrnusambandsins. Afmælisdagurinn rennur upp 7. apríl.

Það er gamaldags blær yfir treyjunni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af Hugo Lloris, fyrirliða heimsmeistarana.

Afmælistreyjan verður seld til stuðningsmanna í takmörkuðu upplagi og þegar franska landsliðið gengur inn á völlinn í kvöld verður spilað myndband þar sem rifjaðir eru upp gamlir tímar.

Leikur Frakklands og Íslands hefst 19:45.



Athugasemdir
banner
banner