Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. mars 2019 22:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Móðir Birkis birtir geggjaða mynd - Næst leikjahæstur
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson varð í kvöld næst leikjahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins.

Hann lék sinn 90. landsleik í kvöld. Hermann Hreiðarsson færist í þriðja sæti með 89 leiki en Rúnar Kristinsson er á toppnum með 104.

Leikurinn var ekki frábær og tapaðist hann 4-0 gegn Frakklandi. Birkir getur þó huggað sig aðeins við þennan frábæra áfanga.

Móðir Birkis birti af honum afar krúttlega mynd á Twitter eftir leikinn og skrifar við hana:

„Hver hefði trúað því að þetta krútt yrði næst landsleikjahæsti leikmaður Íslands, ekki ég."

Myndina má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner