mán 25. mars 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Phil Foden: Þetta er draumur
Phil Foden og David Silva.
Phil Foden og David Silva.
Mynd: Getty Images
Englendingurinn ungi Phil Foden hefur fengið þau nokkuð mörg tækifærin með Manchester City á tímabilinu.

Foden segir það að spila fyrir Manchester City sé algjör draumur, hann hefur verið stuðningsmaður félagsins frá því í æsku.

„Þetta er algjör draumur, ég hef haldið með Manchester City frá því í æsku og hef fylgst með þessum leikmönnum bæta sig hjá félaginu. Að fá að spila með þeim núna og læra af þeim er frábært, ég nýt þess alla daga að vera hér og læra nýja hluti.”

Hinn 18 ára gamli Phil Foden hefur skorað sex mörk fyrir City í öllum keppnum á tímabilinu, hann er fæddur í maí árið 2000 svo hann verður 19 ára á árinu.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner