Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. mars 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Rooney um Solskjær: Hann er að vinna frábært starf
Ole Gunnar Solskjær.
Ole Gunnar Solskjær.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney fyrrum leikmaður Manchester United er ánægður með að sjá hversu vel liðinu hefur gengið eftir að Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær tók við stjórastarfinu.

Rooney telur eins og margir aðrir að Solskjær sé rétti maðurinn í starfið til frambúðar.

„Hann hefur búið til mjög góðan anda í hópnum og einnig hjá stuðningsmönnum sem hafa fengið þá trú aftur að liðið geti unnið hvaða lið sem er."

„Hann er að vinna frábært starf og ég er viss um að hann sé lang efsti maður á blaði til að taka við Manchester United, það verður frábært að sjá hann taka við þessu til frambúðar, hann mun kaupa þá leikmenn sem hann telur að henti liðinu best og halda áfram að byggja upp frábært fótboltalið," sagði Rooney sem leikur nú með DC United í MLS-deildinni.

Athugasemdir
banner