mán 25. mars 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Wilshere stefnir á endurkomu fyrir lok tímabilsins
Jack Wilshere.
Jack Wilshere.
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere leikmaður West Ham hefur ekki leikið fyrir liðið síðan í byrjun desember á síðasta ári vegna meiðsla.

Þessi 27 ára gamli miðjumaður hefur aðeins leikið fimm leiki fyrir West Ham á tímabilinu.

Í fyrstu var reiknað með að Wilshere myndi ekki geta spilað meira á þessu tímabili en hann er nú byrjaður að æfa að nýju og vonast til að ná lokakafla tímabilsins.

„Ég er byrjaður að æfa að nýju, þetta hefur tekið sinn tíma og er kannski ekki besti tíminn til að snúa aftur því maður nær örfáum leikjum og svo er tímabilið strax búið," sagði Wilshere.
Athugasemdir
banner
banner
banner