fim 25. mars 2021 18:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Íslands: Alfons og Sverrir Ingi byrja
Icelandair
Aron Einar og Sverrir Ingi á æfingu.
Aron Einar og Sverrir Ingi á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland hefur í kvöld leik í undankeppni HM 2022. Ísland fær erfitt verkefni í fyrsta leik; útileik gegn Þýskalandi.

Byrjunarliðið er klárt fyrir leikinn. Alfreð Finnbogason og Gylfi Þór Sigurðsson eru fjarri góðu gamni og þá byrjar Jóhann Berg Guðmundsson á bekknum þar sem hann er tæpur vegna meiðsla.

Alfons Sampsted byrjar í hægri bakverði og Jón Daði Böðvarsson er fremsti maður. Þeir eru þrír inn á miðjunni; Aron Einar, Rúnar Már og Guðlaugur Victor.

Byrjunarlið Íslands:
1. Hannes Þór Halldórsson
15. Alfons Sampsted
14. Kári Árnason
5. Sverrir Ingi Ingason
18. Hörður Björgvin Magnússon
4. Guðlaugur Victor Pálsson
17. Aron Einar Gunnarsson (F)
16. Rúnar Már Sigurjónsson
21. Arnór Ingvi Traustason
8. Birkir Bjarnason
22. Jón Daði Böðvarsson


Athugasemdir
banner
banner