Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 25. mars 2021 18:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Þýskalands gegn Íslandi: Havertz fremstur
Icelandair
Mynd: Getty Images
Klukkan 19:45 verður leikur Þýskalands og Íslands flautaður á. Þetta er fyrsti leikur þjóðanna í undankeppni HM 2022.

Hægt er að sjá byrjunarlið Íslands hérna.

Byrjunarlið Þýskalands er gríðarlega sterkt. Joshua Kimmich er klár í slaginn og byrjar á miðjunni með Leon Goretzka og Ilkay Gundogan.

Það vekur athygli að Kai Havertz byrjar í fremstu víglínu en ekki Timo Werner. Leroy Sane og Serge Gnabry, kantmenn Bayern München, byrja við hlið hans.

Byrjunarlið Þýskalands:
1. Manuel Neuer (F)
13. Lukas Klostermann
16. Antonio Rudiger
4. Mattias Ginter
23. Emre Can
18. Leon Goretzka
6. Joshua Kimmich
21. Ilkay Gundogan
20. Serge Gnabry
10. Kai Havertz
19. Leroy Sane


Athugasemdir
banner