Nicholas Gonzalez, kantmaður Stuttgart, er á óskalista Tottenham að sögn Sky.
Tottenham sér fyrir sér að Gonzalez gæti fyllt skarð Gareth Bale sem snýr aftur til Real Madrid í sumar eftir lánsdvöl hjá sínu gamla félagi.
Tottenham sér fyrir sér að Gonzalez gæti fyllt skarð Gareth Bale sem snýr aftur til Real Madrid í sumar eftir lánsdvöl hjá sínu gamla félagi.
Stuttgart ku vilja fá 27 milljónir punda fyrir hinn 22 ára gamla Gonzalez.
Gonzalez hefur skorað sex mörk og lagt upp tvö í fimmtán leikjum í þýsku Bundesligunni á þessu tímabili.
Annar leikmaður sem Tottenham hefur augastað á er Jonathan Bamba hjá Lille.
Athugasemdir