Sigurjón verður væntanlega aðalmarkvörður Fjölnis í sumar. Hann hefur mátt sitja á bekknum undanfarin ár en hann hefur varið mark liðsins í Lengjubikarnum í vetur. Sigurjón er unglingalandsliðsmaður (17 leikir) og var á dögunum valinn í æfingahóp fyrir U21 landsliðið.
Hann lék sína fyrstu mótsleiki með Fjölni í fyrra og hluta af sumrinu 2019 var hann hjá Vængjum Júpíters. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Hann lék sína fyrstu mótsleiki með Fjölni í fyrra og hluta af sumrinu 2019 var hann hjá Vængjum Júpíters. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Sigurjón Daði Harðarson
Gælunafn: Alltaf kallaður Grjóni
Aldur: 20 ára
Hjúskaparstaða: Á lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: örugglega einhver æfingaleikur 2017 eða 2018
Uppáhalds drykkur: Redbull
Uppáhalds matsölustaður: mikill Dominos maður
Hvernig bíl áttu: Subaru impreza
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Money heist eru geita þættir, er líka mikill Bachelor maður (pabbi kom mér út í þá þvælu)
Uppáhalds tónlistarmaður: 6ix9ine
Uppáhalds hlaðvarp: Dr. Football alltaf
Fyndnasti Íslendingurinn: Gillzari
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: daim, snickers og jarðaber
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: 582567 is your Coolbet verification code
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ekkert sérstakt en Helgi Agnars myndi ekki fá mig í Einherja
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ayyoub Anes Anbari
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hallur Hallsson hjálpaði kallinum mikið og Gunni Sig markmannsþjálfari er geitin í leiknum.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Stefán Ingi, held að hann hafi aldrei ekki skorað á mig. Ég er í vasanum hanns.
Sætasti sigurinn: Hendum bara Bikarúrslit í 2. fl 2018, tókum FH í framlengingu
Mestu vonbrigðin: Að hafa fengið lítið að spila seinustu ár með mfl.
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Myndi taka Stalla (Kristal Mána) hann er með markanef og hættir ekki að skora þessa dagana
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Ayyoub Anes Anbari
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Sigurpáll Melberg, maður forðast það að vera hliðin á honum á mynd, vel huggulegur
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Ólina Sif , hlýt að fá stig fyrir þetta
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: flestir á föstu en Lúkas Logi var mjög heitur á sínum tíma, kærastan hanns verður bara að sætta sig við það núna
Uppáhalds staður á Íslandi: elska að chilla í klefanum hendum í það bara
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ef ég fæ mer ekki redbull fyrir æfingu verð ég lélegur
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Horfi stundum á chess á youtube, veit ekki hvort það flokkast undir íþrótt og er ekki stoltur af því
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas Nemeziz
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var slappur í flestu, ætli það sé ekki ein af ástæðunum afhverju ég fór í iðnnám
Vandræðalegasta augnablik: fékk virkilega heimskulegt rautt spjald í fyrsta leiknum mínum með mfl
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Andra Lucas ef hann tekur gítarinn sinn með , Kristal til að syngja og vera heimskur , siðan Jökul Andrés bara til að leyfa honum að vera með
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ef ég næ ekki að sofna þá borða ég kex og halfan lítra af mjólk og sofna um leið.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Karl Friðleifur , vissi ekki að hann væri jafn ýktur real life og á Instagram. Samt mjög flottur strákur
Hverju laugstu síðast: Sagði við pabba að ég myndi taka til í herberginu mínu
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: ekkert þreyttara en þegar við keepers erum sendir með útileikmönnum í hlaup
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja:
Athugasemdir